Næsta föstudag er reunion hjá árgangnum mínum úr Kvennaskólanum, 10 ár síðan við útskrifuðumst. Ég er orðin svo svakalega stressuð að það er ekki fyndið. Ég er bara með í maganum núna við að hugsa um þetta. Linda Rós 1.0 hefði sleppt því að mæta en Linda Rós 3.0 fær ekki að komast upp með það. Þetta var fínn bekkur og allt það, en ég á svo skelfilega erfitt með að mæta í fjölmenni, sérstaklega þegar ég er ein að mæta ! En ég get þetta !
Update: Kvöldið var fínt, skrýtið að hitta þetta lið og finnast alls ekki eins og það væru komin 10 ár síðan ég hitti flest síðast. Fór að hugsa um það hvernig í ósköpunum mér datt í hug að fara í Kvennaskólann þegar mér hefur almennt alltaf lyndað betur við stráka og kosið félagsskap stráka frekar en stelpna !
Ég fann vel hvað ég var frekar félagslega fötluð og fátækur námsmaður í menntaskóla. Enda hef ég ekki haldið sambandi við neinn nema á facebook og örfáa á msn. Hápunktur vikunnar, matarlega séð, var að ég og ein vinkona mín fórum á Nonnabita og skiptum á milli okkar ódýrasta bátnum ! Ég einhvern veginn small heldur ekki í neinn hóp þarna. Var svolítið á flakki, var með þessum þessa vikuna og hinum hina vikuna.
Bekkurinn, eða 9 úr bekknum (Anna María, Sóley Unnur, Gunnar, Ríkey, Maggi, Ester, Brynhildur, Bjarki, og ég) hittumst heima hjá einni (Önnu Maríu) og við horfðum á myndband frá Dimission og frá útskriftarferðinni (sem ég fór ekki í). Vá hvað ég mundi lítið eftir Dimmissioninu. Við fórum svo í sal í Skeifunni. Þar var farið í “Speed dating”, allir fengu hálfa mínútu til að segja frá lífi sínu 10 árin og svo skiptu allir um sæti. Ég veit ekki hvað ég talaði við marga en það var alveg slatti. Talaði við marga úr einum bekknum og komst að því að ég kannaðist ekki einu sinni við þetta fólk, hefði getað svarið að ég hefði aldrei séð það áður !
Ég fór um hálf 2 leytið og við fórum 4 (Þóra, Jóhanna og Arna) út í Hagkaup því ein var svo svöng, ég skutlaði þeim svo öllum heim til sín og fór heim að laga til og var að því til um 4 um nóttina. Er ekki alveg eðlilegt að fara frekar heim að laga til en að fara niður í bæ að djamma ? ;-)
En ég er ánægð með að hafa farið, það var fínt að sjá þetta lið aftur.
Rifjaðist upp fyrir mér að ég var einu sinni kosin næstfyndnasta manneskjan í bekknum mínum !