Archive for category Myndir

Húsdýragarðurinn

Posted by Linda Rós on Sunday, 14 March, 2010

Ég fór í Húsdýragarðinn í dag, það var æði ! Ég hef ekki farið í 6 ár, trúið þið því ? Ég geri það nefnilega ekki. Hef alltaf verið á leiðinni en svo bara allt í einu komin 6 ár.

Ég klappaði kiðlingunum, hestunum og kálfi. Dauðlangaði að fara og knúsa selina en kannski næst ! ;-)

Kom mér á óvart hvað allt þarna er illa viðhaldið, eins og t.d öll útiskiltin og svona.

Ég tók yfir 100 myndir, er það ekki alveg örugglega eðlilegt við heimsókn í Húsdýragarðinn, ásamt því að fara barnlaus og brosa allan hringinn af eintómri hamingju yfir dýrunum ? Við mættum svo seint, 45 mínútur fyrir lokun svo við rétt náðum bara að skoða allt einu sinni, ég gæti eytt deginum þarna og tekið mikið fleiri myndir !

husdyragardurinn

Göngutúr í Búrfellsgjá

Posted by Linda Rós on Saturday, 13 March, 2010

Búrfellsgjá
11. mars 2010
Göngufélagi: Ívar og Ronja

Mjög falleg og skemmtileg leið og lítið af fólki (fyrir utan risa stóran hóp sem átti leið þarna um). Ég hafði smá áhyggjur af að þetta yrði álag fyrir bakið en það var alveg í lagi, aftur á móti var löppin að trufla mig talsvert, enn smá doði í henni en það hefur ekki verið að trufla mig lengi enda ekkert verið að ganga á ósléttu. Þarf líka að græja betri skó held ég.

En það var yndislegt að komast loksins í alvöru göngu, í góðu veðri og góðum félagsskap :-)

burfellsgja

Bakaðgerðin

Posted by Linda Rós on Friday, 19 February, 2010

Ég fór á miðvikudaginn upp á spítala og talaði við svæfingalækni, aðstoðarlækni og hjúkrunarfræðing. Ég var ekki nógu ánægð með svæfingalækninn sem sagði þegar ég sagðist vera stressuð og að mig langaði alls ekki í aðgerðina að ef ég myndi fara til sjúkraþjálfara þá þyrfti ég ekkert á aðgerðinni að halda og sagði svo að ég væri svo ung og ég væri með léleg gen greinilega ! Eftir að hafa talað við hann þá lá við að ég væri hætt við aðgerðina ! En fór svo og talaði við yndislegan aðstoðarlækni sem ætlar að verða geðlæknir og myndi ég sko alveg vilja hafa hana sem geðlækninn minn, var mjög áhugasöm t.d um að ég hefði verið að læra árvekni. Hún sagði að ef brjósklosið (”risastóra brjósklosið”) myndi stækka meira þá gæti það farið að þrýsta á taugarnar og gæti valdið því að ég myndi fara að missa stjórn á þvagi og hægðum og missa tilfinningu í nærbuxnalínu og gæti valdið varanlegum skaða. Já nei takk, ég sannfærðist alveg eftir þetta að aðgerðin væri málið, kann vel við að hafa tilfinningu allstaðar og stjórn á þvagi og hægðum ! Ég fór svo heim með upplýsingabækling (sjá fyrri póst) og blöð um mætingu og fleira.

Tókst að fara að sofa fljótlega eftir miðnætti og vaknaði hálf 7 í dimmri íbúð en rafmagninu hafði slegið út um nóttina, sem betur fer þurfti ég bara að slá upp lekaliðanum í íbúðinni en ekki niðrí geymslu. Var frekar kvíðin fyrir þessu öllu en besti vinur minn undanfarnar vikur var á msn og það dreifði huganum og hressti mig að tala við hann (takk S.K fyrir allt!). Guðrún frænka kom svo og sótti mig um 7:20 og við vorum komnar upp á spítala um 20 mínútum seinna. Þá fór ég í sturtu og svo upp í rúm, um 8:45 var komið og náð í mig. Fór þá niður á skurðdeildina og þar fékk ég einhver lyf og saltvatn í æð og svo var ég bara svæfð. Ætli aðgerðin hafi ekki verið búin fyrir 10 og þá fór ég á vöknun, vaknaði þar með gífurlegan skjálfta í öllum líkamanum, fannst það mjög óþægilegt og hann var frekar lengi en svo hætti hann. Var komin upp á stofu um hálf 1 og fékk þá loksins eitthvað að drekka. Svaf svo að mestu fram að kvöldmat sem var um 7 leytið. Fiskibollur með kartöflum og belgbaunum eða eitthvað álíka, hefði verið betra með sósu en það mátti slafra þessu í sig. Fékk “appelsínusafa” með, veit ekki alveg hverjum datt í hug að kalla þetta appelsínusafa, smakkaðist eins og blanda af goslausu vondu appelsínu og vondu appelsínudjúsi. Fékk svo tekex með smjöri og osti aðeins seinna. Um kvöldið las ég bara og svaraði sms-um, uppfærði facebook statusinn einhvern tíman um daginn. Í morgun var ég svo vöknuð um 6 leytið, dottaði eitthvað fram að morgunmat samt og fékk brauð með smjöri og osti og ógeðslegt hálft epli og hrikalega vondan hafragraut í morgunmat.

Annars gekk aðgerðin bara mjög vel, ég er með dofa í hægri löppinni, neðst, sem er alveg eðlilegt eftir svona aðgerð. Svo voru vandamál með þvagblöðruna, var ekki að ná að tæma hana almennilega, var ómskoðuð alveg 6 sinnum held ég en það var alltaf minna og minna magn eftir í henni svo mér var hleypt heim á áætluðum tíma. Hitti lækninn og sjúkraþjálfara í morgun, fór svo í sturtu og Rúnar kom og sótti mig rúmlega 11. Sjúkraþjálfarinn var voða hissa þegar hún spurði hvort að doðinn væri meiri eða minni en fyrir aðgerð og ég sagði að það hefðu ekki verið neinir verkir eða doði í löppunum og spurði mig hvort ég hefði ekki örugglega verið í brjósklosaðgerð. Víst mjög óalgengt að þeir sem komi í aðgerðina séu með sprækar lappir.

Er núna komin heim í sveitasæluna, mamma setti rúm inn í stofu svo ég geti legið þar yfir sjónvarpinu og sef svo niðri. Ronja var ofsa glöð að sjá mig (ekki það að hún er glöð að sjá alla) en hún fór í sveitina um miðjan dag á miðvikudaginn.

Á bara að vera dugleg að hreyfa mig og gera æfingar og fara svo í sjúkraþjálfun og/eða bakskóla eftir 4-6 vikur.

Mér fannst svo áhugaverð þessi mynd af brjósklosinu, enda allir alltaf að spyrja út í hvað brjósklos er og svona svo ég bað hann Aron um að prenta út mynd fyrir mig, sem hann gerði með glöðu geði :-) Er s.s með 2 brjósklos á myndinni, þetta efra var tekið (stóra svarta bungan neðarlega á myndinni, í hvítu línunni), hitt er ekki neitt neitt og verður vonandi ekkert verra og er fyrir neðan.

brjosklos

skurdur

Blóm

Posted by Linda Rós on Wednesday, 17 February, 2010

Ég fékk heimsókn í dag, vinur minn kom og gaf mér blóm ! Fyrstu blómin sem ég fæ síðan á afmælinu mínu í fyrra og komst að því að ég þarf að fjárfesta í blómavasa !

blomvondur

Hvað er þetta skakka ?

Posted by Linda Rós on Friday, 22 January, 2010

Bara Lindan að standa !

skakka

Käsekuchen

Posted by Linda Rós on Saturday, 16 January, 2010

Vinur minn kom í heimsókn í dag og við bökuðum Käsekuchen, sem var einmitt kakan sem ég fékk á deitinu í Heiðmörk í haust. Já stelpur mínar það eru greinilega til karlmenn sem kunna að heilla okkur ! ;-)

Við fórum og fengum okkur að borða á Saffran meðan kakan var að kólna, skruppum svo aðeins í HR því mig vantaði að prenta út, ótrúlega skrýtið að koma þarna eftir meira en 5 ár, bæði eins og maður hafi verið þarna í gær og líka eins og maður hafi ekki verið þarna áratugum saman. Við horfðum svo á myndina 300, ég verð nú að segja að mér fannst hún eiginlega leiðinleg en hún er svo rosalega flott og allir þessir magavöðvar út um allt gerðu það alveg þess virði að horfa á hana !

Käsekuchen

Gleðilegt nýtt ár

Posted by Linda Rós on Friday, 1 January, 2010

Ég þakka ykkur öllum kærlega fyrir árið sem er að líða, öllum þeim sem ég hitt á árinu, átti samskipti við á facebook og msn og sérstaklega ykkur fáu hræðum sem gefið ykkur tíma til að lesa þetta hjá mér ! :-)

gledilegtar

Btw var ég búin að segja ykkur hvað mér finnst æðislega gaman og vænt um þegar þið skrifið eitthvað á bloggið mitt, gleður litla sál ;-)

Gleðileg jól

Posted by Linda Rós on Thursday, 24 December, 2009

Við Ronja óskum ykkur öllum gleðilegra jóla. Ég sendi jólaknús á ykkur öll og Ronja sendir jólasleikj í framan á ykkur öll ;-)

jolakort

Gallabuxur

Posted by Linda Rós on Thursday, 3 December, 2009

Á sunnudaginn fór ég með Ingu í Smáralindina til að leita að skóm á mig og þeir fundust ! Ótrúlegt en satt og bara frekar ódýrir ! Stígvél með smá hæl (hef ekki átt skó með hæl í mjög mörg ár, út af bakinu á mér, en mig langaði og vona að það gangi upp) ! Fórum í Levis búðina og þar var 35% afsláttur af gallabuxunum sem ég var búin að vera að spá í svo þær voru keyptar líka ! Búin að fá hrós á rassinn minn í þeim frá hommum, konum og stelpum (sem segir kannski til um hvaða fólk ég umgengst mest!). Stígvélin ganga bæði við buxurnar og pilsin mín, svo alger snilld ! Ég er bara að verða nokkuð ánægð með fataskápinn minn !

stigvel

Fuglar

Posted by Linda Rós on Thursday, 3 September, 2009

Ég var að keyra heim úr bænum um miðjan ágúst síðastliðinn og varð litið á rafmagnslínurnar, ég hef oft séð fugla á þeim en ekki svona gífurlegt magn. Svo ég var eins og ekta túristi og tók mynd ;)

fuglar