Archive for category Myndir

Afmælisbarn

Posted by Linda Rós on Monday, 19 April, 2010

Ég er hvorki meira né minna en tuttugu og tíu ára í dag ! Ok ok ég er orðin þrítug ! ;-)

Ég hélt upp á afmælið í gær, var með opið hús á Kárastöðum. Það kom fullt af fólki en talsvert færri en ég bjóst við, margir afboðuðu sig á síðustu stundu og sumir bara mættu ekki eins og gengur og gerist. Maður á klárlega ekki að eiga afmæli á próftímum, fermingartímum og svo finnst mér að ég ætti að eiga einkarétt á afmælisdeginum ! ;-)

Ég var örugglega 6 tíma í eldhúsinu að baka í gær, 2 tegundir af franskri súkkulaðiköku, Daim ostaköku og Cheeriosköku. Við Kalli bjuggum til skinkuhorn í vikunni og hann Magnúsarsælu og Marengstertu. Svo gerði hann 2 heita brauðrétti og mamma bjó til Mæjumall (hrísgrjónarækjukarrýrétt). Allt svaka gott og alger snilld að eiga svona góðar hjálparhellur.

Planið var svo að fara út að borða eða í bíltúr og út að borða á afmælisdeginum (helst með fjallmyndarlegum karlmanni eins og stóð á facebook eventinu mínu) en það datt eiginlega upp fyrir. Ég fór líka út að borða og í leikhús á föstudaginn, hélt upp á afmælið í gær og er að fara í sumarbústað á morgun svo mér fannst eiginlega bara óþarfi að gera eitthvað í dag. Svo ég át bara afganga með vini mínum og við fórum saman í bíó, hann bauð mér í lúxussalinn í Álfabakka.

afmaeli30

“Mamma hefur svo miklar áhyggjur af afmæli mínu og er strax farin að skipuleggja þetta. (Sjáðu mamma, hvað ég er stillt stelpa, búin að búa til facebook event!)

Ég á afmæli á mánudegi svo ég ætla að halda upp á þetta á sunnudeginum (finn mér svo kannski bara einhvern fjallmyndarlegan til að bjóða mér út að borða á mánudeginum, tekið verður við umsóknum fram að miðjum apríl). Svo í raun mun ég halda upp á síðasta dag minn á þrítugsaldrinum en ekki upp á þann fyrsta á fertugsaldrinum ;-)

** Öllum boðið sem hafa hitt mig einhvern tíman á lífsleiðinni **
og mökum og börnum að sjálfsögðu

Síðast hafði ég opið hús og það komu margir sem mér hefði ekki dottið í hug að bjóða því mér datt ekki í hug að það myndi koma. Kætti mig svo mikið að ég ætla að hafa þetta svona í ár líka :-) Engin föst boðskort en ÞÉR er boðið.

Gjafir óþarfar en auðvitað mjög vel þegnar ! ;-) “

Akureyri

Posted by Linda Rós on Wednesday, 7 April, 2010

Ég fór norður á miðvikudaginn og gisti 5 nætur hjá Róberti bróður. Alexander sonur hans býr í Danmörku og kom í heimsókn yfir páskana.

Miðvikudagur:
Við Alexander lentum rúmlega 10 um kvöldið. Flugferðin var hræðileg, tók koffínátíntöflu sem var sennilega orðin of gömul svo ég var að farast úr flugveiki. Róbert og Freyja tóku á móti okkur og við fórum heim til Róberts, horfðum á smá videó og fórum svo að sofa.

Fimmtudagur:
Við fórum öll saman í Bónus að versla fyrir næstu daga. Freyja eldaði rosalega gott lasagne um kvöldið. Annars voru bara rólegheit á okkur.

Föstudagur:
Við fórum í Kjarnaskóg sem er einn af mínum uppáhaldsstöðum á landinu, finnst rólan og kofinn og brúin og allt þetta alveg yndislegt ! Fórum svo í kaffi heim til Hjölla og Bibbu en þar var Lillý amma, Óli frændi og fjölskylda og Vala og fjölskylda. Það var tekin fjölskyldumynd af okkur. Fengum alveg rosalega góðar veitingar þar, ekki komist í svona veislu í marga mánuði ! Um kvöldið elduðum við hamborgara.

Laugardagur:
Haukur vinur minn bauð mér í bíltúr um svæðið, hann er frá Akureyri og ættaður úr sveitinni þar í kring. Keyrðum framhjá öllum sveitabæjunum og núna veit ég ansi mikið meira um þetta svæði en áður. Við stoppuðum svo í kaffi á einum bænum og vorum þar í örugglega hátt í 2 tíma. Enduðum svo á að fara út að borða á Strikinu, fengum okkur kjúklingabringu með svepparisotto og piparostasósu, sem var alveg ferlega gott !

Um kvöldið fór ég svo heim til foreldra Iðunnar og hitti hana og Sverri þar og við drukkum hvítvín og rósavín. Sverrir og Iðunn spiluðu á gítar og sungu með, ég lét það nú oftast eiga sig enda laglaus með öllu og kann voða fáa texta ;-) En þetta var fyrsta gítarpartýið mitt, ever ! Systrabörn Sverris og makar komu svo þangað og við fórum 7 saman á Sjallann, þar sem Sálin var að spila. Það kom mér á óvart hvað það var fátt fólk, Sjallinn var örugglega ekki einu sinni hálfur, en það spilaði kannski inn í að það var 25 ára aldurstakmark, kostaði 2500 inn og lokaði klukkan 3. En það var svaka fjör, ég hafði örugglega ekki farið á ball/út að dansa í 10 ár ! 10 ÁR ! Ég þarf pottþétt að fara oftar, hafði alltaf mjög gaman af þessu í gamla daga og hef enn ! Við hittum fleiri systrabörn Sverris þarna og vorum bara með þeim um kvöldið. Einn systrasonur hans lítur út alveg eins og Barney í HIMYM, grínlaust ! Ég hitti svo Hlyn og Hauk þarna og Haukur fékk far með mér heim, brósi var svo indæll að koma og sækja systur sína og Haukur var í húsi rétt hjá mér. Sverrir var svo góður að bjóða mér upp á Mojito !

Ég var nú ekki að gefa nein færi á að láta reyna við mig um kvöldið, en það var einn sem gerði tilraun, starði á mig heillengi eins og hann væri á einhverju, greip svo þétt um mig og ætlaði að fara að dansa við mig, ég hélt nú ekki og kom mér í burtu. Ég held að íslenskir karlmenn þurfi sárlega að fara á viðreynslunámskeið !

Sunnudagur:
Ég fékk annan góðan bíltúr á sunnudeginum ! Ég btw elska bíltúra ! En þá hitti ég Pétur, strák sem ég hafði bara spjallað við á netinu, sem á jeppa sem ég væri sko alveg til í að eiga og hann fór með mig á aðeins fáfarnari slóðir en ég fór daginn áður, sem var bara eðal ! Þó hann hafi nú svikið mig með jarðböðin við Mývatn, ég þarf bara að fara þangað næst ! Mig dauðlangar í alvöru jeppaferð/vélsleðaferð/fjórhjólaferð! Þetta var svaka fjör, sjaldan sem ég hitti gaur sem ég hef spjallað við á netinu sem kemur mér á óvart. Hann kallaði mig þvera ! Sem enginn nema mamma vogar sér að segja við mig held ég ;-) En aftur á móti þá þarf einn til að þekkja einn ! ;-)

Mánudagur:
Ég var orðin veik, eða eins og ég sagði á facebook: “fann gamla kunningja á Akureyri, kvef og hálsbólgu ! Þeir hefðu alveg mátt vera í fríi annars staðar en á Akureyri !”. Svo dagurinn fór bara í að hafa það rólegt, svaf, horfði á videó, skruppum í heimsókn til ömmu og svo um kvöldið fórum við Alexander suður.

Ég fékk tvisvar sinnum ís á Akureyri og í bæði skiptin Emmessís ! Þessir gaurar hlustuðu ekkert á mig ! Kjörís er málið !

Alger snilld samt að þekkja 2 gaura til að hitta, gerði fríið mikið skemmtilegra, þarf að kynnast fleira fólki þarna :-) Langar í marga bíltúra næst þegar ég fer !

—-
Ég algerlega elska Akureyri og langar að flytja þarna. Pétur kenndi mér áttirnar, það er víst nauðsynlegt að kunna þær þegar maður býr þarna og Freyja kenndi mér að það er ekki hýði utan um kartöflur heldur flus ! Og Akureyringar flysja kartöflurnar en skræla þær ekki. Niðurfall heitir víst Svelgur og svo náttúrulega borða þeir pylsu en ekki pulsu og drekka kók í bauk !

Bakið:
Ég svaf á einhverjum ferðabedda hjá brósa sem var nú ekkert ferlega góður og bakið kvartaði dálítið, en ég vaknaði og fór á fætur og þá var það bara búið, engir langvarandi verkir !

Ég fór í 2 ágætis bíltúra og bakið kvartaði smá en svo stóð ég upp og þá var það bara búið !

Ég fór í háhæluðu stígvélunum mínum á ballið, dansaði meira og minna í 3 tíma og bakið kvartaði ekki einu sinni !!! Ég var mjög stressuð að fara í þessum skóm, var alveg viss um að ég yrði bara að sitja megnið af timanum, en það var nú ekki !

akureyri

Ný mynd

Posted by Linda Rós on Monday, 29 March, 2010

Svona leit ég út í dag á leið í fermingarveislu. Ég er alveg komin á þá skoðun að dökkt sé málið og núna ætla ég að safna toppinum.

lindamars10

Fjallganga#1 Helgafell Mosó

Posted by Linda Rós on Saturday, 27 March, 2010

Helgafell Mosó
27. mars 2010
Göngufélagi: Bjössi og Ronja

Vá hvað ég komst að því hvað ég er í lélegu formi eftir þessa rúmlegu, þarf snarlega að bæta úr þessu fyrir sumarið. Spurning með að fara að byggja upp þol með að fara að synda.

helgafell

Ronja rökuð

Posted by Linda Rós on Saturday, 27 March, 2010

Ég er búin að vera að missa geðheilsuna yfir hundahárum út um allt, Ronja er búin að vera að fara svakalega úr hárum. Bæði er hún að skipta um feld og svo held ég að íslenska Bónusfóðrið sé svona hrikalega slæmt fyrir feldinn á henni. Eftir eilífa báráttu við hundahárin sem eru út um allt ! Þá ákvað ég að láta raka hana svo nú er hún næstum allsber greyið ! Hún var rökuð styttra en síðast sem ég held að hafi kannski verið mistök hjá mér en þetta vex fljótt og ég keypti á hana peysu áðan. Peysan er nú ekkert svakalega flott en það skásta sem ég fann. Ég skil hreinlega ekki að hundaföt þurfi að vera svona ljót og svo eru þau oft í skrýtnum stærðum og ekkert passar á Ronju.

ronjarokud

ronjapeysa

Göngutúr í Tröllafoss

Posted by Linda Rós on Friday, 26 March, 2010

Tröllafoss
26. mars 2010
Göngufélagi: Bjössi og Ronja

Það þarf að vaða yfir ánna, við blotnuðum svakalega í lappirnar þó heiðarlega tilraun hafi verið gerð að setja poka utan yfir skóna. Næst myndi ég bara vaða berfætt yfir og hafa lítið handklæði með til að þurrka sér.

trollafoss

Húsdýragarðurinn

Posted by Linda Rós on Sunday, 14 March, 2010

Ég fór í Húsdýragarðinn í dag, það var æði ! Ég hef ekki farið í 6 ár, trúið þið því ? Ég geri það nefnilega ekki. Hef alltaf verið á leiðinni en svo bara allt í einu komin 6 ár.

Ég klappaði kiðlingunum, hestunum og kálfi. Dauðlangaði að fara og knúsa selina en kannski næst ! ;-)

Kom mér á óvart hvað allt þarna er illa viðhaldið, eins og t.d öll útiskiltin og svona.

Ég tók yfir 100 myndir, er það ekki alveg örugglega eðlilegt við heimsókn í Húsdýragarðinn, ásamt því að fara barnlaus og brosa allan hringinn af eintómri hamingju yfir dýrunum ? Við mættum svo seint, 45 mínútur fyrir lokun svo við rétt náðum bara að skoða allt einu sinni, ég gæti eytt deginum þarna og tekið mikið fleiri myndir !

husdyragardurinn

Göngutúr í Búrfellsgjá

Posted by Linda Rós on Saturday, 13 March, 2010

Búrfellsgjá
11. mars 2010
Göngufélagi: Ívar og Ronja

Mjög falleg og skemmtileg leið og lítið af fólki (fyrir utan risa stóran hóp sem átti leið þarna um). Ég hafði smá áhyggjur af að þetta yrði álag fyrir bakið en það var alveg í lagi, aftur á móti var löppin að trufla mig talsvert, enn smá doði í henni en það hefur ekki verið að trufla mig lengi enda ekkert verið að ganga á ósléttu. Þarf líka að græja betri skó held ég.

En það var yndislegt að komast loksins í alvöru göngu, í góðu veðri og góðum félagsskap :-)

burfellsgja

Bakaðgerðin

Posted by Linda Rós on Friday, 19 February, 2010

Ég fór á miðvikudaginn upp á spítala og talaði við svæfingalækni, aðstoðarlækni og hjúkrunarfræðing. Ég var ekki nógu ánægð með svæfingalækninn sem sagði þegar ég sagðist vera stressuð og að mig langaði alls ekki í aðgerðina að ef ég myndi fara til sjúkraþjálfara þá þyrfti ég ekkert á aðgerðinni að halda og sagði svo að ég væri svo ung og ég væri með léleg gen greinilega ! Eftir að hafa talað við hann þá lá við að ég væri hætt við aðgerðina ! En fór svo og talaði við yndislegan aðstoðarlækni sem ætlar að verða geðlæknir og myndi ég sko alveg vilja hafa hana sem geðlækninn minn, var mjög áhugasöm t.d um að ég hefði verið að læra árvekni. Hún sagði að ef brjósklosið (“risastóra brjósklosið”) myndi stækka meira þá gæti það farið að þrýsta á taugarnar og gæti valdið því að ég myndi fara að missa stjórn á þvagi og hægðum og missa tilfinningu í nærbuxnalínu og gæti valdið varanlegum skaða. Já nei takk, ég sannfærðist alveg eftir þetta að aðgerðin væri málið, kann vel við að hafa tilfinningu allstaðar og stjórn á þvagi og hægðum ! Ég fór svo heim með upplýsingabækling (sjá fyrri póst) og blöð um mætingu og fleira.

Tókst að fara að sofa fljótlega eftir miðnætti og vaknaði hálf 7 í dimmri íbúð en rafmagninu hafði slegið út um nóttina, sem betur fer þurfti ég bara að slá upp lekaliðanum í íbúðinni en ekki niðrí geymslu. Var frekar kvíðin fyrir þessu öllu en besti vinur minn undanfarnar vikur var á msn og það dreifði huganum og hressti mig að tala við hann (takk S.K fyrir allt!). Guðrún frænka kom svo og sótti mig um 7:20 og við vorum komnar upp á spítala um 20 mínútum seinna. Þá fór ég í sturtu og svo upp í rúm, um 8:45 var komið og náð í mig. Fór þá niður á skurðdeildina og þar fékk ég einhver lyf og saltvatn í æð og svo var ég bara svæfð. Ætli aðgerðin hafi ekki verið búin fyrir 10 og þá fór ég á vöknun, vaknaði þar með gífurlegan skjálfta í öllum líkamanum, fannst það mjög óþægilegt og hann var frekar lengi en svo hætti hann. Var komin upp á stofu um hálf 1 og fékk þá loksins eitthvað að drekka. Svaf svo að mestu fram að kvöldmat sem var um 7 leytið. Fiskibollur með kartöflum og belgbaunum eða eitthvað álíka, hefði verið betra með sósu en það mátti slafra þessu í sig. Fékk “appelsínusafa” með, veit ekki alveg hverjum datt í hug að kalla þetta appelsínusafa, smakkaðist eins og blanda af goslausu vondu appelsínu og vondu appelsínudjúsi. Fékk svo tekex með smjöri og osti aðeins seinna. Um kvöldið las ég bara og svaraði sms-um, uppfærði facebook statusinn einhvern tíman um daginn. Í morgun var ég svo vöknuð um 6 leytið, dottaði eitthvað fram að morgunmat samt og fékk brauð með smjöri og osti og ógeðslegt hálft epli og hrikalega vondan hafragraut í morgunmat.

Annars gekk aðgerðin bara mjög vel, ég er með dofa í hægri löppinni, neðst, sem er alveg eðlilegt eftir svona aðgerð. Svo voru vandamál með þvagblöðruna, var ekki að ná að tæma hana almennilega, var ómskoðuð alveg 6 sinnum held ég en það var alltaf minna og minna magn eftir í henni svo mér var hleypt heim á áætluðum tíma. Hitti lækninn og sjúkraþjálfara í morgun, fór svo í sturtu og Rúnar kom og sótti mig rúmlega 11. Sjúkraþjálfarinn var voða hissa þegar hún spurði hvort að doðinn væri meiri eða minni en fyrir aðgerð og ég sagði að það hefðu ekki verið neinir verkir eða doði í löppunum og spurði mig hvort ég hefði ekki örugglega verið í brjósklosaðgerð. Víst mjög óalgengt að þeir sem komi í aðgerðina séu með sprækar lappir.

Er núna komin heim í sveitasæluna, mamma setti rúm inn í stofu svo ég geti legið þar yfir sjónvarpinu og sef svo niðri. Ronja var ofsa glöð að sjá mig (ekki það að hún er glöð að sjá alla) en hún fór í sveitina um miðjan dag á miðvikudaginn.

Á bara að vera dugleg að hreyfa mig og gera æfingar og fara svo í sjúkraþjálfun og/eða bakskóla eftir 4-6 vikur.

Mér fannst svo áhugaverð þessi mynd af brjósklosinu, enda allir alltaf að spyrja út í hvað brjósklos er og svona svo ég bað hann Aron um að prenta út mynd fyrir mig, sem hann gerði með glöðu geði :-) Er s.s með 2 brjósklos á myndinni, þetta efra var tekið (stóra svarta bungan neðarlega á myndinni, í hvítu línunni), hitt er ekki neitt neitt og verður vonandi ekkert verra og er fyrir neðan.

brjosklos

skurdur

Blóm

Posted by Linda Rós on Wednesday, 17 February, 2010

Ég fékk heimsókn í dag, vinur minn kom og gaf mér blóm ! Fyrstu blómin sem ég fæ síðan á afmælinu mínu í fyrra og komst að því að ég þarf að fjárfesta í blómavasa !

blomvondur

magazine103

honda32

hotel140

hotel138

health136

leather82

garcia35

marina228

mania167

gallery6

betonline.com

house214

illinois26

jelly61

locator224

ibanez13

graphic175

laser45

guitar57

information113

lyric55

lyric70

illinois27

lyrics203

jacket7

health138

louis14

green201

light139

foundation144

harvey116

history199

league74

image33

jackie11

lyrics191

factory114

melfosteronline.org

holding230

taxhelpattorney.com

market241

israel244

johnny108

international185

lyric99

generator66

harmony104

jerry75

marathon208

japanese47

festival190

hotel138

glass119

linda168

lyrics119

health132

ireland216

lyric49

guide28

firmware249

leader73

grand164

lyrics163

marketing246

example61

insurance160

hotel92

engineerjobs.com

lyrics183

fight207

hospital59

lyrics165

lincoln165

finance231

canyontours.us

lighting150

manual193

leather80

ignition20

husband4

international177

lyrics67

hotel165

institute133

ipers.org

kansas159

shayleetaylor.com

lowrance30

beckettpedia.com

fairy123

jones124

golden135

fighter210

guide27

mario236

lyrics229

firewall243

houston229

marcus215

festival181

house206

listing193

larry42

manchester160

house206

guest11

marcus215

hospital57

estate33

london249

lyrics182

harvard115

marantz207

malta148

funeral203

hills193

glider124

lyrics56

verfrisser.net

lyrics41

fields205

cleanjokes.net

herbal181

james31

letter112

marie223

marine232

lyric110

fashion157

hipaaexplained.com

legend93

kicker213

little200

justin153

raykomkacoins.com

hockey226

horse45

indianapolis84

guitar46

kocorner.com

kennedy187

guide32

marina228

florist64

lyrics0

language27

japan42

making134

larry41

yellowjersey.org

force96

archibase.net

general59

forest102

lyrics173

international183

dodsbir.net

football95

cornellbigred.com

island231

louis15

yourmedicaldetective.com

garcia35

manager159

lathe54

lyrics125

lawrence64

lyrics41

lumber36

hotel118

lyric88

heart142

marathon209

lodge231

language23

loveandhugz.com

hotel161

javascript54

example63

hawaiian121

honey36

machine76

forest103

fhatraining.org

house213

legacy89

lyrics133

house188

estate35

lexus126

instructions142

hotel93

international175

fabric104

guest12

hotel128

julie147

irvine221

learn77

jerry74

guide21

joseph133

latin57

island226

gallery12

nylonplace.com

hospital55

google141

jacket5

estate3

grand158

lyric63

frank170

webkinzreality.com

grain156

lyrics120

groups248

indians85

hotel146

maple205

keygen206

imperial39

lyrics196

group243

fresh186

harley100

johnny110

james29

northcarolinajobs.net

lyrics19

javascript53

houston221

login237

jungle150

green197

leather84

lyrics161

manchester160

industry98

manga165

exercises78

grand162

eroticdream.eu

hernia183

centuryheli.com

lyrics225

leather85

logos240

bmifcu.org

ligament138

happy94

guitar58

friends190

houston221

musclefoxes.com

management150

gallery2

jacksonville16

lyrics124

linux183

lyric45

library133

final228

hockey220

green202

dart.jobs

german85

kevin203

garage34

europe51

radrowdies.com

language33

lottery9

lyrics226

florence45

joseph132

lyric71

james26

lyric40

estate17

holdings231

marketing245

karaoke162

graham155

lyrics56

hotel148

international185

houston229

virgin100.com

lyric91

female172

manual184

lanka35

valleycoin.com

event55

florida61

florida46

barrysbootcamp.com

guest14

hospital55

kelly185

friend188

horse50

lyrics130

katie169

father161

owenscorningblog.com

investment210

house208

greeting208

lyrics187

jersey76

kevin202

license137

front192

groups245

jeans55

house184

hotel163

johnny110

surprisedbyford.com

hotel98

lyric76

guide28

generator65

illinois26

jones128

login238

hotel86

lamps13

lyric55

great184

jones124

festival191

cornwallwildlifetrust.org.uk