Archive for category Nám/Vinna

Framtíðarstarf

Posted by Linda Rós on Thursday, 3 September, 2009

Maður er nú alltaf að hugsa um framtíðina, þó að bakið og geðið komist í fínt lag þá verð ég alltaf í áhættuhópi og þarf eitthvað starf sem er gott fyrir bak og geð og eitthvað sem er gefandi og ekki með of mikið af tíma sem þarf að drepa… ef ég bara vissi hvaða starf það væri.

Einn stakk upp á kennslu, ég held það sé ekkert endilega svo vitlaus hugmynd, fjarkennsla og að kenna eldra fólki á tölvur og svona, gæti hentað mér vel. Full stofa af uppreisnargjörnum unglingum væri kannski ekki alveg málið samt…

Er annars opin fyrir uppástungum ;-)

Ætli ég geti fengið einhvern staðar borgað fyrir að klappa og horfa á dýr 8 tíma á dag ?