Er að velta fyrir mér að hætta þessu bloggi, allt merkilegt fer eiginlega á facebook, sem statusar, linkar eða myndir. Tek stundum skorpur og hendi hérna inn mörgum færslum í einu þegar ég nenni…
Er að velta fyrir mér að hætta þessu bloggi, allt merkilegt fer eiginlega á facebook, sem statusar, linkar eða myndir. Tek stundum skorpur og hendi hérna inn mörgum færslum í einu þegar ég nenni…
Ég fékk í gærkvöldi hrottlegan vírus í tölvuna mína, fyrsta skipti sem ég fæ svona á mína eigin tölvu. Er með vírusvörn og einkar varkár ! Ég reyndi aðeins að hreinsa hann út en tölvan var komin í algert rugl svo ég ákvað að strauja hana bara. Svaka stuð… eða þannig ;-)
*pot*
Mér finnst hafa minnkað rosalega lestur á þessu bloggi (allavega commentun), veit ekki hvort það sé því að ég tók síðuna niðri í nokkrar vikur og fólk veit ekki að hún er komin upp aftur eða hvort að fólk sé bara farið að fylgjast með manni á facebook (þar sem ég er dugleg að setja í statusa hvað ég er að gera og svoleiðis).
Það er búið að vera eitthvað dns vandamál í gangi svo síðan hefur oftar en ekki verið niðri, en það er vonandi komið í lag núna. Var að verða nett pirruð á þessu.
Jæja lindaros.com er komin upp aftur, ég er mjög ánægð með það. Ég ætla ekki að henda gömlu færslunum mínum inn heldur byrja bara fersk, svo það mun taka einhverja daga að stilla þetta og snurfusa og svona. Þið bíðið bara þolinmóð.
Mest ánægð er ég að fá bókavefinn minn aftur :D