Í gær fór ég aðeins út á flakk, í fyrsta skipti held ég bara á árinu ! Kalli var í vaktafríi og kom og sótti mig um 10 leytið og við skelltum okkur á bókamarkaðinn þar sem ég keypti bara 4 bækur ! Kraftaverk gerast, ég þarf alltaf að passa mig gífurlega í kringum bækur, einu skiptin sem mér finnst gaman að kaupa eitthvað ! Við fengum okkur svo súpu og brauð í Perlunni sem var fínt, löbbuðum upp og úff hvað lappirnar á mér voru ekki að samþykkja þetta, ansi mikið af lélegum vöðvum eftir allt þetta aðgerðaleysi ! Við kíktum svo í Elko, Intersport og Smáralindina
Ég keypti Gerðu besta vin þinn betri, það má reyna að ala Ronju betur upp ! Athyglisbresturinn og ofvirknin gera það samt erfitt ! og keypti Einhvers konar ég eftir Þráinn Bertelsson (en hann bjó í nokkur ár í sveitinni minni þegar hann var lítill, þetta er s.s ævisagan hans) og svo 2 Anne Hooper bækur.
Annars er greinilegt að ég er búin að vera að vinna mikið í mínum málum undanfarið ár, ég var alveg föst í handbókadeildinni á Bókamarkaðinum og það voru nokkrar kennslubækur sem ég hugsaði að kaupa. M.a Til fyrirmyndar – Heildstæður stuðningur við jákvæða hegðun og Lifsmennt – Viðfangsefni í lífsgildum fyrir 3-7 ára. Var líka að spá í bókum eins og Þú ert þinnar gæfusmiður og Mannlaus veröld. En svo ákvað ég eiginlega bara að forða mér áður en ég myndi kaupa hálfa deildina !
Við Inga fórum í Kringluna að finna föt á mig sem gekk alveg ágætlega og enduðum svo daginn með að fara á Up! í 3D og með ensku tali. Myndin var allt öðruvísi en ég bjóst við, var eiginlega meira svona dramaástarsaga en fyndin barnamynd. En hún var æðisleg og ég mæli pottþétt með henni. Fannst skondið að við hliðina á okkur sátu 3 rosa gæjar, konu- og barnlausir á sýningunni allavega ;-)
Fötin sem við fundum var langerma kjóll og kápa í Oasis, keypti reyndar hvorugt í ferðinni en það verður eflaust gert á næstu dögum, þarf t.d að velja lit á kápuna, til grá og svört.

Ég held ég þurfi að fara að banna sjálfri mér að fara í Góða hirðinn, ég get alveg tapað mér þar í bókakaupum. Ég veit ekki hve margar bækur ég hef keypt þarna síðan ég uppgötvaði þetta í vor en það eru einhverjir tugir ! :S Sumt bækur sem mig langar að eiga, annað sem gætu verið áhugaverðar. En ég er voða pikkí, ég kaupi bara bækur sem líta nokkurn veginn út fyrir að vera nýjar.
En það er bara svo gaman að fara þarna :D Stofna kannski bara bókasafn ! ;-)
Ég hef verið á leiðinni í allt ár að kaupa mér föt, en þið vitið hvað mér finnst þetta einstaklega leiðinlegt (finnst skárra að þrífa!). Kristbjörg frænka benti mér á að kíkja á SOHO Markaðinn og ég fór þangað í gær og kom út með 1 stutt gallapils, 2 kjóla, 1 leggings, 1 gollu og 2 töskur og borgaði fyrir þetta 18950 kr. Sem mér finnst bara frekar vel sloppið. Mig vantar samt enn föt, t.d buxur og fleiri pils.
Myndir af fötunum eru á facebook.