Geðræktarkassinn

Allir ættu að hafa eitthvað fallegt um sig í Geðræktarkassanum sínum og eitthvað sem hjálpar þeim þegar þeim líður illa. Ég reyni alltaf að safna saman þegar einhver segir fallegt við mig en gleymi því of oft. Við skiptum öll einhverja miklu máli og oft dettum við í pakkann að finnast við ekkert æðisleg, þá er gott að rifja upp hvað öðru fólki finnst um okkur.

Svo skoða ég dýr á netinu!

“Geðræktarkassinn er eins konar andlegur sjúkrakassi, en hann er hvergi hægt að kaupa því það er svo mismunandi hvað vekur jákvæðar hugsanir hjá okkur. Geðrækt hvetur alla landsmenn til að hlúa að geðheilsu sinni og finna þannig hvað þeir geta gert til að auka vellíðan í sínu lífi.”

——————————–
Tilvitnanir
——————————–

“Þú ert bara með of lítið sjálfsálit til að sjá hversu fullkomin þú ert í raun”

“Annars ertu ein yndislegasta manneskja sem ég hef kynnst :)”

“Umhyggjusöm. Gott að tala við. Brosmild. Skemmtileg. Dugleg þrátt fyrir skemmt bak :)”

“Veistu.. það er eitthvað við þig sæta stelpa.. ert með sætasta bros sem veraldarsagan getur státað af.. Alveg endalaust krúttíleg og skemmtileg lífsviðhorf, sem þú þarft að láta rætast..”

“Þú ert yndisleg :*”

“Ert nú falleg dýrið þitt.”

“Þú ert svo yndisleg og með svo fallega útgeislun.
Knús, knús.”

“Þú ert frábær, falleg og góð, njóttu þess að vera til og lifa lífinu lifandi.
knúsi, knús.”

“Þetta kann að hljóma einkennilega… – en það sem ég þekki til þín so far bendir til að þú sért ein heilbrigðasta manneskja sem ég hef nokkurn tímann hitt.”

“Mér finnst þú ómetanleg.”

“Krúttbomba.”

“Þykir virkilega vænt um þig Linda.
Hefði viljað fá þig fyrr í líf mitt.”

“Ég naut þess líka að hafa þig mér við hlið í 3 daga.
Þú ert engill með heilandi og nærandi útgeislun fyrir líkama og sál.”

“Þú ert með svo mikla útgeislun að sólin nær ekki til þín.”

“Þú ert svo mikið fiðrildi. Af því þú ert svo lítil, fragile og saklaus. Einfaldur hlutur gerir þig spennta og þú svífur um eins og fiðrildi í logni”.

“Mig langar mest að safna húmornum þínum í flöskur og dreifa um heiminn til allra sem eiga erfitt og þurfa á stóru brosi að halda”.

“Djúpa vináttu, ég hef aldrei síðan pabbi dó getað talað svona mikið við nokkurn, þú ert með hjarta úr gulli, falleg að utan sem innan, ég þarfnast þín og þú þarfnast mín, þú ert besti vinur minn!”

“Þú ert ekki ómerkilegur pappír… þú ert lúxusfrímerki.”

“Ekki gleyma að þú ert snillingur :-) þú ert awsome”

“Sést úr flugvél hve ungleg þú er.”

“Þú átt allt það besta skilið, þú ert stórkostleg!”

“Mikið svakalega varstu sæt í dag Linda Rós… alltaf sæt reyndar en í dag… góðan daginn! Þér líður greinilega vel þessa dagana… og er það vel…”

“Mér er gríðarlega annt um þig og þú hefur fáránlega mikið til brunns að bera. Fyrir utan að vera falleg og klár!”

“Lísa það er bara smá prósenta af fjörinu að þekkja Lindu á facebook! Ættir að hitta hana í persónu, þá kemstu í feitt skal ég segja þér ;)”

“Þú ert yndisleg Linda ;) Allir ættu að eiga eitt eintak af þér ;)”

“Þess vegna er aðdáunarvert að lesa á milli línanna í bloggfærslunum þínum hve sterk þú ert.”

“Styrkurinn sem ég er að tala um sést best á því að þú hefur brilljant húmor (líka fyrir sjálfri þér), þú hefur heilbrigðar skoðanir á lífinu og sendir frá þér mikið af uppbyggilegum tilfinningum… það er bara alls ekki sjálfgefið eftir 20 ár í myrkri”

“Ja, sko það er nú saga að segja frá því get ég sagt þér… -þetta er einhver snillingur sem ég rakst á á internetinu sem skrifar skemmtilega pistla… pistla sem stundum fá mann til að orga af hlátri og stundum fá mann til að hugsa um hvað sé raunverulega mikilvægt í lífinu og tilverunni… -sem sagt mikill snillingur”

“En ef þú ætlar að setja öll gullkorn í status, þá þarftu að setja sjálfa þig í status.”

“Ef þú einn daginn lítur í spegil og sérð ekki orðheppna, fyndna og skemmtilega stelpu, þá krefst ég þess að þú hringir í mig tafarlaust.”

“Mig langar að sjá hana… helst með sætri, skemmtilegri og gáfaðri stelpu með flottan rass… -og þú ert vitaskuld efst á blaði… sko langefst… ertu til?”

——————————–
Til fyrirmyndarbréf
——————————–
TAKK FYRIR AÐ VERA TIL FYRIRMYNDAR!

Til: Lindu Rósar, fallegustu konu landsins

Til fyrirmyndar fyrir að vinna statt og stöðugt að því að bæta sig. Þú sýmir framúrskarandi árangur í að takast á við veikleika og ert svo ákveðin og dugleg að aðrir ættu að taka þig sér til fyrirmyndar. Það geri ég.

Með kveðju,

——————————–
Bréf #1
——————————–
- Linda er einhver skemmtilegasta manneskja sem ég þekki. Hún er með svo yndislega svipi þegar hún er að hugsa, vandræðaleg og þess háttar.
- Hún er mjög fjörug og á það til að vera mjög active, stundum OF active.
- Hún er auðsæranleg þannig að það þarf að passa það sem maður segir við hana og gerir. Ég hef gert og sagt margt til að særa hana.
- Ef það væri ekki fyrir hana þá væri ég ekki sá maður sem ég er í dag.
- Hún á mikinn heiður á því hversu opinn ég er orðinn og hversu ófeiminn ég varð.
- Hún hefur staðið með mér sama hvað er að og ég reyni að gera mitt besta til að gera það sama fyrir hana.
- Hún veit það að ég mun alltaf vera til staðar ef hún þarf á hjálp að halda. Hvort sem það er að tala eða eitthvað annað.
- Þegar vinir koma svona fram við þig eins og Linda gerir þá gerir maður það sama á móti. Það er alvöru vinátta.
- Og ég veit að vinátta okkar Lindu er alvöru vinátta.
- Linda er vinur með stórt hjarta, hún er æði.
- Ég er viss um að hún hefur verið bleik kanína í fyrralífi. Ákveðið bros/glott minnir á kanínustyttu sem hún á. Svo eru líka ákveðnir hlutir við útlit hennar sem minna á kanínu híhí (einkahúmor elskurnar mínar, einkahúmor!)
- Hún er minn sanni besti vinur og það mun sennilega enginn koma í hennar stað..Lindan mín…
- Ég hef átt mína bestu daga með henni. Ég geri allt fyrir Lindu mína. Friends 4ever you and me girl! LOVE!
Ókostir uppá djókið:
- Hún á það til að verða svona skemmtilega frek. “Settu spólu í tækið núna eða þú færð ekki Fanta” og setur upp grybbusvipinn þangað til ég set spólu í.
- Hún á það líka til að verða svolítið kröfuhörð þessi elska, en það er allt í lagi, hún er Lindan mín.
- Grybban er stundum til staðar, hún er ekki mikil, þá bara svona djók-grybba.
- Hún er rosalega þrjósk. Ef eitthvað virkar ekki hjá henni þá hamast hún í sama farinu þangað til það virkar…
- Þegar hún verður pirruð eða er eitthvað að þrjóskast útí horni þá má gjarnan heyra “Helv…andsk…djö…andsk…djö…helv…andsk…” Alltaf sömu þrjú orðin. Svo sætt! :)
- Já og ef ég er að tala um eitthvað við hana sem hún fattar ekki alveg þá verður hún svoldið þrjóskuleg í framan, krumpar varirnar alveg til hliðar og lítur upp og niður og til hliðanna og spáir í því sem ég sagði og segir svo “Hvað meinaru?” eða “Ha? Hvernig þá?”
- Klikkunin er æðisleg. Þegar hún tekur spassaköstin þá kemst maður ekki hjá því að brosa og hlæja, nánast í hvaða skapi sem maður er.
- Lindan mín er ekki með neina alvöru galla, þetta eru bara gallar sem eru skemmtilegir og sætir, s.s krúttlegheitin við hana.

——————————–
Bréf #2
——————————–

Hvað mér finnst um Lindu:

Það er alveg skýrt hvað mér finnst um hana enda held ég að ég hafi ekki legið á skoðun minni. Mér finnst hún gullfalleg og reyndar finnst mér hún fallegasta kona sem ég veit um. Hún er með stór og falleg augu, krúttlegt nef og gríðarlega kynæsandi varir. Hún er með fallegt hár sem er rosalega sexy með svona hnút. Hún er grönn og sæt. Hún lyktar alltaf vel og er snyrtileg.

Þótt pakkningarnar séu góðar þá er innihaldið miklu betra. Linda er góð og indæl. Hún er dýravinur sem ég kann að meta. Hún er hæglát og fórnfús. Hún er gjafmild og viljug til að gera gott fyrir mig. Hún gaf mér afmælisgjöf sem var vel hugsuð og greinilegt að hún hlustar vel þegar ég tala og þá meina ég HLUSTA. Linda er líka þrusuklár stelpa.

Linda kveðst hafa ákveðna vankannta sem ég tek því miður ekki mikið eftir. Þeir snúa að mestu leyti að geðheilbrigði. Hún er með kvíða og svo er hún líka með brjósklos sem nýbúið er að gera við. Þá er hún félagsfælin en ég tek ekkert eftir því. Í mínum huga eru þessir hlutir ekki vandamál heldur verkefni. Linda hefur einu sinni reynt að taka eigið líf. Það veit ég og vona að hún reynir ekki aftur enda skilst mér að nú sé ekkert nema birta í lífinu hjá henni og það er ég glaður með.

——————————–
Ljóð
——————————–

Vinkona mín hún Linda

Einn hef ég verið um nokkurn tíma,
Þungur og kvíðinn allt í bland.
Slíkt koðnar niður er ég næ þér í síma,
rödd þín og gleði keyrir óttann í strand.
Er blogg þitt ég las, fannst mér þig ég þekkja.
Geislandi af jákvæðni og engan að blekkja.
Ég eignaðist vin sem lýsir veröld mína bjarta.
Þú hefur heillað mig og átt hlut í mínu hjarta.
Ég þakka Guði gjöfina og bið hann þig að vernda
Ég óska þér alls hins besta og vil engla til þín senda
Takk elsku Linda fyrir allt, fyrir að vera svona góð við mig.
Ég mun þér aldrei gleyma, þykir sannarlega vænt um þig.

Þinn vinur Víðir

——

Innblástur ljósveranna

Hugur minn segir eitt en hjartað annað.
Að hlusta á það fyrrnefnda er alveg bannað.
Tilfinningar hið innra eru tungumál sálarinnar,
þar er að finna hinn eiginlega sannleika eilífðarinnar.
Ég þarf að vera kyrr, hljóður og hlusta á,
svör englanna og boðskapur koma innan frá.
Ljósverurnar veita mér ávallt innblástur og gefa mér hint,
ég þarf að vakna í stað þess að lifa lífinu svona blint.
Mér er sagt að leita ei svo langt yfir skammt heldur að finna
og tengingum við ástvini allt í kring með kærleika að sinna.
Ég á lítinn engil í hjarta mér en út af varnareðli hef ég eigi hann séð.
Með leiðsögn, hugleiðslum og bænum, fær hjarta mitt loks að fylgja með
Þar sem ég eitt sinn var blindur hef ég nú öðlast sýn,
elsku Linda Rós, þú ert litla ástarkúlan mín.

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

You may use these HTML tags and attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>