Gestabók
Ég ætla nú ekki að setja upp neina gestabók því það er nú eiginlega alveg úrelt dæmi, en datt í hug að setja upp eina síðu ef einhver vill kvitta fyrir heimsókn en vill ekki commenta á einhverja færslu eða síðu. Mér finnst alltaf gaman að fá kvittanir frá fólki :-)

Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir notalegar stundir á árinu.
Sömuleiðis elsku Óli :*
Hæ Linda Rós
Ég var að lesa um bakverkina þína og ómægod…það er ótrúlegt hvað þetta heilbrigðiskerfi á lítil svör við svona einkennum. Ég stend í þessum sporum…get ekki nema í litla stund staðið, setið eða legið og er endalaust að leita einhverra leiða sem virka. Btw…ertu búin að fara í aðgerðina?
Kveðja
Lísa
Hæ Lísa
Samhryggist innilega, þetta er ömurlegt ástand ! Ég fer í aðgerðina í enda febrúar myndi ég halda. Vildi að ég hefði einhverjar töfralausnir fyrir þig. Annars sagði þessi læknir að það besta sem maður gæti gert væri að fara í göngutúra, ef maður getur varla labbað þá fara bara stutt en oftar.
Annars hefur Björgvin Óskarsson læknir bjargað mér stundum í gegnum tíðina með verkjameðferð (sprautur og nálastungur) en það virkaði ekki síðast fyrir mig. Ég borgaði 6900 fyrir hvern tíma hjá honum fyrir áramót og ég var með afsláttarkort svo það er svínslega dýrt að fara til hans.
Kveðja,
Linda Rós
Takk fyrir góða síðu… virkilega áhugaverð lesning. Gangi þér sem allra best með allt þitt í komandi framtíð. ;)
Takk Óli minn :-)