Mér finnst ofboðslega gaman að fara á námskeið. Mér finnst ofboðslega gaman að læra nýja hluti. Mig langar til að mennta mig meira en ég er ekki alveg tilbúin í allt vinnuálagið og prófálagið sem fylgir miklu námi. Ég veit heldur ekki hvað mig langar til að læra, væri t.d til í mennta mig í einhverju uppeldistengdu eða sálfræðitengdu eða næringarfræðitengdu eða líkamsræktartengdu eða dýratengdu eða eða eða. Svo núna fer ég bara á andleg námskeið, stutt námskeið, fræðslu og fyrirlestra sem ég fæ frítt og eru próflaus. :-)
Ef einhver veit um sniðuga ódýra/ókeypis fræðslu þá má endilega láta mig vita. :)
Mig langar rosalega á Lífsviðhorf- Lífsstíll – Lífsgæði en ég er að vinna til 16:40 og námskeiðið byrjar alltaf 16:30. Það kostar líka rosalega mikið en ég myndi eflaust frá styrk frá Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar.
Á síðustu 3 árum hef ég lært mjög mikið um andleg málefni, sem ég hefði viljað óska að ég hefði lært á barnsaldri. Enda verið í meðferð á göngudeild geðdeildar, farið á námskeið á geðdeild, verið á Hvítabandinu og Reykjalundi. Fullt af fræðslu og námskeiðum. Flest algjör snilld.
Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar býður upp á námskeið sem kosta ekki neitt. Á síðasta ári fór ég á Eiturefnaúrgangsruslaskrímsli með Eddu Björgvins og á Skapandi skrif með Þorvaldi Þorsteinssyni. Ég hefði viljað fara á fleiri námskeið en komst ekki. Í fyrra fór ég líka á hugleiðslunámskeið, Tong Len námskeið, Bjórskólann og námskeið á vegum vinnunnar.
Í ár er ég búin að fara á námskeið á vegum vinnunnar, er í Kundalini jóga á vegum Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar og er búin að fara á námskeið um Einelti. Ég er svo skráð á fleiri námskeið og bíð spennt. :-)
*************************************************************************
2011 – Grunnnámskeið í hugleiðslu (10×1,5=15 tímar) – Dagmar Vala
- hugleidsla.is
Bloggfærsla
*************************************************************************
2011 – Tong Len (giving and taking) (2×2,5=5 tímar) – Dagmar Vala
- hugleidsla.is
Þetta er námskeið í að gefa og þiggja og hefur verið notað í árþúsund í Tíbet. Þetta er ævaforn aðferð í að gefa frið og kærleika til annarra og taka burt áhyggjur og kvíða.
*************************************************************************
2011 – Bjórskólinn (3 tímar)
- Bjórskólinn
Nemendur Bjórskólans ferðast um undraheim bjórsins undir styrkri leiðsögn kennara okkar sem allir hafa hlotið vottun bruggmeistara Ölgerðarinnar. Námsefnið nær allt frá sögu bjórsins, bruggferlinu og ólíkum bjórtegundum til eiginleika bjórsins og bjórmenningar á Íslandi.
Í frímínútum heimsækja nemendur brugghús Ölgerðarinnar og upplifa af eigin raun hvernig bruggferlið fer fram. Jafnframt verður Borg brugghús heimsótt en þar fá nemendur bjórþefinn af því sem koma skal í heimi íslenskrar bjórmenningar. Nemendur okkar eru með þeim fyrstu til að smakka afurðir Borgar hverju sinni.
Í kennslustund smakka nemendur níu mismunandi bjórtegundir frá öllum heimshornum, ásamt öðrum fljótandi glaðningum. Að lokinni kennslu fá nemendur veglegt ítarefni sem minnkar þörfina á glósutöku til muna. Við útskrift fá nemendur sérstakt viðurkenningarskjal vottað af formanni skólanefndar.
*************************************************************************
2011 – Eiturefnaúrgangsruslaskrímsli – Edda Björgvins (1,5 klst)
- Gott að vita! Námskeið og fyrirlestrar á vegum SFR og St.Rv.:
Hvernig getur manneskja með lítinn sjálfsaga breytt mataræði sínu úr ruslmat í vítamínríkt fæði? Hvernig getur lélegur kokkur búið til gómsæta heilsurétti? Hvaða eiturefni erum við að innbyrða daglega í svokölluðum “hollustu”mat? Þetta og margt fleira ber á góma í fyrirlestri Eddu og nokkur góð ráð fylgja fyrir þá sem vilja lifa heilbrigðara lífi – en nenna því ekki! Fyrirlesturinn er fyrst og fremst spaugileg lýsing á eigin reynslu í því að gerast hollustu-æta. Edda rekur söguna frá því hún byrjaði í makróbíótísku baununum og þangað til núna og svo er hún með hryllingssögur frá dr. Gillian, Kevin Trudau og Huldu Clark.
*************************************************************************
2011 – Starfsdagur Gufunesbæjar (4 tímar)
Útieldun, fyrirlestur um fjölgreindakenningu Gardners, fræðsla um líkamsbeitingu og hreinlæti. Horft á myndina Vegurinn heim.
*************************************************************************
2011 – Skapandi skrif – um frásagnarlistina sem tæki til að skapa, skilja og skemmta – Þorvaldur Þorsteinsson (3×3=9 tímar)
- Gott að vita! Námskeið og fyrirlestrar á vegum SFR og St.Rv.:
Á þessu námskeiði miðlar Þorvaldur af reynslu sinni á sviði skapandi skrifa og beinir sérstaklega athyglinni að mikilvægi sögunnar í daglegi lífi okkar allra. Það er manninum eiginlegt að tjá tilveru sína í sögum af öllu tagi og það er ekki síst þeirra vegna sem líf okkar öðlast merkingu þegar allt kemur til alls. Með aukinni meðvitund um þann sagnaanda sem við höfum yfir að ráða opnast okkur fleiri leiðir til að tjá og túlka á nærandi hátt það líf sem við lifum og byggja upp innihaldsríkari og jákvæðari samskipti við aðra.
Á námskeiðinu kynnir hann til sögunnar einföld en notadrjúg verkfæri fyrir þátttakendur að nýta til eigin skráningar og sköpunar, þar sem tilgangurinn er fremur að skerpa eigin meðvitund og upplifanir fremur en skapa stórvirki á bókmenntamarkaði – þó slíkt sé vissulega velkomið í leiðinni.
Form; Stuttir fyrirlestrar, einföld verkefni og samræður.
Bloggfærsla
*************************************************************************
2012 – Starfsdagur Gufunesbæjar (7 tímar)
Fyrirlestrar um barnalýðræði og ADHD, og svo ratleikur.
*************************************************************************
2012 – Kundalini jóga – Jóhanna Þórdórsdóttir (8×1,5=12 tímar)
- Gott að vita! Námskeið og fyrirlestrar á vegum SFR og St.Rv.:
Kundalini jóga byggir á öndunaræfingum, jógastöðum, möntrum, hugleiðslu og slökun.
Það vinnur að því að styrkja ónæmiskerfið, koma jafnvægi á innri starfsemi eins og meltingu og taugakerfi, auka einbeitingu og vellíðan. Kundalini jóga hentar bæði byrjendum og jógaiðkendum sem hafa reynslu af öðrum tegundum jóga.
Bloggfærsla
*************************************************************************
2012 – Hvað er einelti? Viðbrögð og varnir – Árni Guðmundsson (3 tímar)
- Gott að vita! Námskeið og fyrirlestrar á vegum SFR og St.Rv.:
Fjallað verður um einelti almennt, hvað er einelti og helstu kenningar og hvaða reglur gilda varðandi einelti í íslensku starfsumhverfi. Þá verður enn fremur farið yfir nokkrar aðferðir til þess að fyrirbyggja einelti og því lýst hvernig unnið er úr þeim málum sem upp koma. Rætt er um sáttaferli og hvernig við sem einstaklingar getum brugðist við þegar að einelti kemur upp. Farið er yfir eðli samskipta og samskiptamáta. Á námskeiðinu er gert ráð fyrir virkir þátttöku nemenda sem felast m.a. í lausn hópaverkefna og þátttöku í umræðum