Ronja á sér nokkra uppáhaldsdrykkjustaði, heima vill hún helst drekka úr baðkerinu eða sturtunni (fyrst var sturtan efst á lista og ef hún fékk ekkert þar þá fór hún ofan í baðið en núna vill hún helst bara baðið). Uppi í bústað vill hún drekka hjá steinunum við fuglabaðið eða úr sturtunni.
Henni finnst allt gott sem hún hefur smakkað, sumt sem við höfum gefið henni og sumt sem hún hefur gripið af gólfinu (gúrka, paprika, gulrót, tómatur, ostur, poppkorn, kjúklingur, cheerios, korn flakes, kex ofl.) , tja nema þá kannski þurrmaturinn en hún borðar hann samt vel. Henni finnst æði að fara í berjamó og er þá hrifnust af bláberjunum en nartar aðeins í krækiberin. Hún étur þau sjálf af lynginu.
Hún er oftast mjög góð að gera allt úti, hefur einu sinni skitið inni en pissað nokkrum sinnum. Aðallega þegar við erum ekki nógu dugleg að setja hana út eða þegar veðrið er leiðinlegt.
Hún er farin að vakna sjaldnar á næturnar. Í gærkvöldi fór hún t.d út að pissa um hálf 12, vaknaði svo um 6 leytið og pissaði og skeit úti og svo aftur um 10 leytið.
Við erum á hvolpanámskeiði og erum búin að fara í þrjú skipti. Í fyrra skiptið var hún heima og það var bóklegur tími en í seinna skiptið var verklegur tími þar sem hún fékk að hitta 2 bræður sína og 1 eldri cavalier tík og 1 eldri cavapoodle tík. Mjög fyndið að sjá að systkinin leituðu mikið meira í hvort annað en í hina hundana á námskeiðinu.
Hún kann að sitja, vera kyrr, koma (þegar það hentar henni), fara inn í búr, fara út og koma inn (þegar það hentar), að hún megi ekki fá nammi fyrir framan hana fyrr en hún hefur horfst í augu við mann og maður sagt gerðu svo vel. Er aðeins farin að kunna að leggjast.
Hún geltir voða sjaldan, aðallega bara á ketti sem hún kemst ekki að og á hluti sem henni finnst vera eitthvað dularfullir. Eins og t.d Fréttablaðiðssnifsi sem fauk inn í girðinguna hennar um daginn.
Hún er mjög hrifin af öllu mannfólki. Hrifin af hvolpum en ekki jafn hrifin af fullorðnum hundum, veit ekki alveg hvernig hún á að haga sér og vill bara skríða upp í fangið á mér.
Hún fór í fyrstu dýralæknaheimsókninna eftir að við fengum hana um daginn og fékk bólusetningasprautu, hún fór frekar illa í hana því hún vældi allt kvöldið þó enginn væri að koma við hana, hringdi í ræktandann sem hafði ekki heyrt annað eins. En hún jafnaði sig sem betur fer.
Hún hefur farið í 2 passanir, í bæði skiptin til ræktandans. Í annað skipti út af misskilningi, ég ruglaði saman helgum og hún fór því í smá föstudagsheimsókn og fékk að leika sér við systur sína, bróður sinn og ca 18 aðra hunda. Hún var frekar lítil í sér fyrst þegar hún koma. Helgina á eftir fór hún og var í tvær vikur, var mikið sjóaðri þegar hún mætti þá á föstudeginum.
Hún er algert klifurdýr, þegar hún er úti þá stekkur hún upp á grillið (fyrst upp á sólstól og svo upp á grillið) og situr þar. Um daginn vorum við með pizzu á ofnskúffu ofan á eldavélinni, hún gerði sér lítið fyrir og stökk upp á eldhússtól og þaðan upp á borðið og fékk sér að borða. Ræktandinn setur grindur í kringum rúmið sitt á daginn svo hundarnir komist ekki upp, Ronja fór samt tvisvar upp í rúm, fyrsti hundurinn hjá henni sem hefur gert þetta ! Upp í bústað um daginn tók ég hana með mér inn á bað þegar ég fór í sturtu og hún fór upp á klósettið og sat þar (eins gott að muna að loka því alltaf)