Viðtöl og pistlar

—————————————————————
Pistlar á Bleikt.is eftir mig:
—————————————————————
10. júní 2011: Loftfirrtar þolæfingar gegn þunglyndi (skrifað með Víði Þór Þrastarsyni)
18. febrúar 2012: Ómerkilegur pappír
12. mars 2012: Láttu vaða! Út úr þægindahringnum!
26. mars 2012: Það velur enginn að þjást af geðsjúkdómi

—————————————————————
Viðtöl:
—————————————————————

Bleikt.is birti viðtal við mig þann 14. apríl 2011.
„Langar ekki lengur að deyja”
14.4.2011 | 08.00 – Malín Brand

Pressan.is vann frétt um viðtalið við Bleikt.is sama dag.
Vildi deyja þegar hún var 11 ára: Reyndi þaulskipulagt sjálfsvíg – Lausn á þunglyndi í loftfirrð?

Fréttatíminn birti viðtal við mig 15. apríl 2011 (birtist á netinu 14. apríl).
Loksins langar mig að lifa
14.04 2011 | Þóra Tómasdóttir

Það voru nokkrar staðreyndarvillur í því viðtali, sjá að neðan.

Staðreyndavillur:
“Ef mér hefði boðist að ýta á takka og enda líf mitt þá hefði ég hiklaust gert það. Alveg þar til á mánudaginn fyrir rúmri viku.”
Rétt er: Mánudaginn fyrir tveimur vikum.

“Við 65-80% af hámarksálagi fer líkaminn að vinna loftfirrt.”
Rétt er: Þetta er loftháð álag, yfir 80% er loftfirrt.

“Hún hefur glímt við bakverki í áraraðir og fyrir rúmu ári fór hún í brjósklosaðgerð. Að henni lokinni tóku við deyfisprautumeðferðir og sjúkraþjálfun.”
Rétt er: Deyfisprautumeðferðirnar og sjúkraþjálfunin var fyrir aðgerð.

“Linda Rós lærði hugræna atferlismeðferð á göngudeild geðdeildar þegar hún leitaði sér fyrst hjálpar í heilbrigðiskerfinu. „Aðferðin var líka kennd á Reykjalundi og síðar fór ég á námskeið í hugrænni atferlismeðferð gegn kvíða.”
Rétt er: Ég var ekki kynnt fyrir hugrænni atferlismeðferð fyrr en heilum 7 árum eftir að ég leitaði mér fyrst hjálpar. Lærði hana fyrst á geðdeild, svo á námskeiði gegn kvíða á Landspítalanum, svo Hvítabandinu, svo Reykjalundi.

“Ég var rúmliggjandi í tvo mánuði eftir brjósklosaðgerðina”
Rétt er: Ég var rúmliggjandi í 2 mánuði fyrir aðgerðina, ekki eftir.

:: Ég sendi inn athugasemdir um þetta allt en það hefur kannski ekki náðst í tæka tíð fyrir prentun.

Og svo smá athugasemdir:
“Linda Rós lýsir sjálfri sér sem tvöföldum persónuleika. Önnur persónan er klár, jákvæð og með sjálfstraust. Hin er vonlaus, heimsk og pirruð. Undanfarin ár hefur neikvæða persónan verið háværari og örsjaldan hefur Linda Rós séð tilgang með lífi sínu. ”
:: Neikvæða persónan hefur alltaf verið bara í bakgrunninum, hún hefur ekki birst öðrum.

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

You may use these HTML tags and attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>